Mynd af Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands

Fjármálastöðugleiki

Eitt meginhlutverka Seðlabanka Íslands er að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslumiðlun í landinu og við útlönd. Heilbrigt fjármálakerfi er nauðsynleg forsenda hagstæðrar framvindu í efnahagsmálum og virkrar stefnu í peningamálum.

Á alþjóðavettvangi hefur verið lögð vaxandi áhersla á virkt eftirlit með fjármálastarfsemi og yfirsýn yfir ýmsa áhættuþætti í fjármálakerfi og í þjóðarbúskap í því skyni að leitast við að koma í veg fyrir alvarleg áföll. Áherslan á virkt og öruggt fjármálakerfi er í samræmi við það stefnumið seðlabanka flestra landa að stuðla að öryggi fjármálakerfisins, þ.e. að tryggja fjármálastöðugleika. Viðfangsefnum Seðlabanka Íslands á sviði fjármálastöðugleika er nánar lýst í sérstakri samþykkt bankastjórnar - sjá hér (pdf-skjal).  Seðlabankinn leitast við að stuðla að öryggi fjármálakerfisins með því að fylgjast náið með þjóðhagslegu umhverfi og fjármálamörkuðum, fjármálastofnunum og greiðslukerfum. Jafnframt fylgist bankinn með þróun fjármálakerfisins bæði hér á landi og erlendis, styrk þess og skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni. Starfsemi seðlabanka á þessu sviði er frábrugðin hefðbundnu fjármálaeftirliti að því leyti að í stað þess að fylgjast fyrst og fremst með stöðu einstakra fjármálastofnana er áhersla lögð á þætti sem kynnu að fela í sér hættu fyrir fjármálakerfið í heild sinni. Í því skyni að stuðla að traustum undirstöðum og heilbrigði fjármálakerfisins eiga Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið með sér náið samstarf. Einu sinni á ári birtir Seðlabankinn úttekt á fjármálastöðugleika á Íslandi í ritinu Fjármálastöðugleiki.

Á síðustu áratugum hafa fjármálaáföll riðið yfir víða um heim með víðtækum afleiðingum. Fjármálaáföll eru truflun eða skyndileg breyting á starfsemi fjármálafyrirtækja eða markaða sem hefur marktæk neikvæð áhrif á efnahagsþróun. Erfiðleikar í einu fjármálafyrirtæki, eða mikil verðbreyting á einum eignamarkaði, sem ekki hefur víðtæk áhrif á fjármálakerfið í heild og/eða á efnahagsstarfsemina, telst ekki fjármálaáfall. Afdrifaríkustu fjármálaáföllin eru bankaáföll og gjaldeyrisáföll. Fjármálaáföll sem ógna fjármálakerfinu í heild kunna að krefjast sérstakra neyðaraðgerða af hálfu seðlabanka og/eða annarra opinberra aðila. Því er mikilvægt að treysta undirstöður fjármálakerfisins og að fylgjast með þáttum sem grafið gætu undan trúverðugleika þess.

Þegar sérstaklega stendur á og Seðlabankinn telur að fyrirgreiðsla hans sé nauðsynleg til að varðveita traust á fjármálakerfi landsins eða að möguleiki sé á keðjuverkun vegna erfiðleika eins fjármálafyrirtækis getur hann gripið inn í til þess að fleyta viðkomandi fjármálafyrirtæki tímabundið yfir þá erfiðleika sem það kann að hafa ratað í vegna lausafjárvanda. Ef í hlut á banki með höfuðstöðvar í einu Norðurlandanna og jafnframt starfsstöð í að minnsta kosti einu öðru norrænu ríki gæti reynt á samkomulag norrænu seðlabankanna þar að lútandi.

VerðbólgaMeira »

Vísitala neysluverðs, 12 mánaða breyting. Síðasta gildi: 4,5%
Verðbólgumarkmið er 2,5%

Vextir SeðlabankansMeira »
Vextir Seðlabankans
Daglán 8,50%
Veðlán 7,00%
Viðskiptareikningar innlánsstofnana 5,50%
Gengi gjaldmiðlaMeira »
Gjaldmiðill 8.9.2010 Br. *
USDBandaríkjadalur 118,46 0,19%
GBPSterlingspund 183,08 0,73%
DKKDönsk króna 20,22 -0,16%
EUREvra 150,54 -0,13%
* Breyting frá síðustu skráningu
GengisvísitölurMeira »
Gengisvísitölur 8.9.2010 Br. *
Viðskiptavog þröng** 204,99 0,05%
* Breyting frá síðustu skráningu
** Vísitalan hefur verið endurreiknuð þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar sem Seðlabankinn hefur hætt að reikna.
Aðrir vextirMeira »
Aðrir vextir
Dráttarvextir frá 1.9.2010 14,00%
08.09.10 REIBID REIBOR
O/N 5,500% 6,000%
S/W 5,500% 6,000%
1 M 5,800% 6,300%
3 M 5,400% 5,900%
1 Y 4,600% 5,100%


© 2005 Seðlabanki Íslands - Öll réttindi áskilin
Póstfang: Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavik - Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Sími: 569 9600 - Bréfasími: 569 9605

Prentvæn útgáfa

Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli